
Improvement
Bóka þjónustu
Improvement
Styður þig á þinni vegferð

Maríanna Magnúsdóttir
Maríanna Magnúsdóttir er rekstrarverkfræðingur, markþjálfi og heilari með yfir 15 ára reynslu í kennslu, ráðgjöf og innleiðingu umbótahugsunar bæði í atvinnulífi og einkalífi.
Hún er stofnandi improvement.is, þar sem hún býður upp á námskeið, fyrirlestra, vinnustofur, leiðtogamarkþjálfun og heilun.
Maríanna hefur ástríðu fyrir að styðja einstaklinga, stjórnendur, leiðtoga og teymi í að ná árangri á breytingavegferð sinni. Hún hefur einnig sérhæft sig í stjórnun og leiðtogafærni sem skapar uppbyggilega og framgangsdrifna vinnustaðamenningu. Maríanna trúir því að vinnustaðamenning spili stórt hlutverk í innleiðingu stefnu skipulagsheilda.
